← Til baka

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 12. október 2026

1. Ábyrgðaraðili

Skrif ehf., kt. 541025-2190, Ísland, [email protected]

Skrif ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga vegna notendareikninga, vefsins og samskipta við okkur. Félagið er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR).

Viðskiptavinur er ábyrgðaraðili þegar Skrif vinnur persónuupplýsingar fyrir hans hönd, svo sem upplýsingar í bókhalds- og fjárhagsgögnum hans. Skrif er þá vinnsluaðili og um vinnsluna gildir vinnslusamningurinn í viðauka A við viðskiptaskilmálana.

2. Hvaða upplýsingum söfnum við

2.1 Persónuupplýsingar við skráningu

  • Nafn, netfang, símanúmer (ef veitt)
  • Innskráningargögn frá innskráningarþjónustum (t.d. Google)
  • Notandanafn og prófílmynd

2.2 Viðskipta- og fyrirtækjaupplýsingar

  • Nafn fyrirtækis, kennitala, VSK-númer
  • Heimilisfang, rekstrarform, atvinnugrein

2.3 Fjárhagsgögn

  • Bankareikningsnúmer og tegund reiknings
  • Bankahreyfingar (fjárhæðir, dagsetningar, lýsingar, tilvísanir)
  • Kreditkortagögn og kreditkortahreyfingar
  • Stöður reikninga

2.4 Bókhaldsgögn

  • Bókhaldsfærslur (debet/kredit)
  • Viðskiptavinir (nöfn, netföng, símanúmer, heimilisföng)
  • Lánardrottnar (nöfn, tilvísanir)
  • Starfsmenn (nöfn, netföng, símanúmer, heimilisföng, ráðningardagar, kennitölur)
  • Reikningar og kostnaðarfærslur

2.5 Spjallgögn

  • Skilaboð sem þú sendir til Skrif
  • Svör frá Skrif og aðgerðasaga
  • Upplýsingar sem Skrif greinir og vistar um fyrirtækið þitt

2.6 Skrár sem hlaðið er upp

Við söfnum öllum skrám sem þú hleður upp, svo sem PDF-skjölum, myndum, bankayfirlitum og reikningum.

2.7 Gögn sem safnast sjálfkrafa

  • Tækjaupplýsingar (vafri, stýrikerfi)
  • IP-tala og almenn staðsetning
  • Hvaðan þú komst inn á vefinn (tilvísunarslóð og herferðarauðkenni)
  • Notkunargögn og villuboð úr vafra (eingöngu ef þú hefur samþykkt greiningarkökur)
  • Vafrakökur (sjá kafla 7)

2.8 Greining og sérsniðin þjónusta

Til að veita þér sérsniðna þjónustu greinum við gögn fyrirtækisins þíns. Þannig útbúum við meðal annars sjálfvirkar bókhaldstillögur, fjárhagslegar samantektir og skýrslur. Greiningin fer eingöngu fram í þína þágu. Gögn eru aldrei seld eða notuð í þágu þriðja aðila.

3. Hvernig við notum gögn þín

Hvað við gerumAf hverjuLagagrundvöllur (GDPR)
Stofnun og rekstur reikningsNauðsynlegt til að veita þér þjónustuna6(1)(b)
Samstilling bankagagnaKjarni þjónustunnar6(1)(b)
Samstilling bókhaldsgagnaKjarni þjónustunnar6(1)(b)
Greining fjárhagsgagna með gervigreindKjarni þjónustunnar6(1)(b)
Spjall við SkrifKjarni þjónustunnar6(1)(b)
Geymsla skjala og skráaHluti af þjónustunni6(1)(b)
Greining og sérsniðnar skýrslurHluti af þjónustunni6(1)(b)
Sending tilkynninga í tölvupóstiHluti af þjónustunni6(1)(b)
Varðveisla gagna meðan þjónustusamningur er í gildiNauðsynlegt til að veita þér þjónustuna6(1)(b)
Varðveisla gagna í 30 daga eftir lokun reikningsTil að gefa þér tækifæri til að endurheimta gögn6(1)(f)
Greining á notkun og villuleitTil að viðhalda þjónustunni og bæta hana6(1)(f)
Notkunargreiningar í vafraEingöngu ef þú samþykkir6(1)(a)

4. Vinnsluaðilar

Eftirfarandi þjónustuveitendur vinna persónuupplýsingar fyrir okkar hönd:

VinnsluaðiliLandTilgangur
Cloudflare WorkersNæsta gagnaver (m.a. Ísland)Hýsing og gagnavinnsla
Cloudflare R2ESBSkráageymsla
Neon.techESBGagnagrunnur (PostgreSQL)
ClerkBNAAuðkenning og innskráning
AnthropicBNAGervigreindarvinnsla (Claude)
OpenAIBNAGervigreindarvinnsla (GPT)
GoogleBNAGervigreindarvinnsla (Gemini) og tölvupóstur
Fireworks AIBNAGervigreindarvinnsla á eigin innviðum
TypeSafe AIBNAGervigreindarvinnsla (Jev)
OpenRouterBNAMilligönguþjónusta fyrir gervigreindarvinnslu
PostmarkBNATölvupóstsending
PostHogESBGreiningar og villuboð
SlackBNAInnri tilkynningar
Já hf.ÍslandUppflettingar á fyrirtækjum og einstaklingum
Arion bankiÍslandBankatenging
LandsbankinnÍslandBankatenging
ÍslandsbankiÍslandBankatenging
PaydayÍslandBókhaldskerfatenging
Dk PlusÍslandBókhaldskerfatenging
ReglaÍslandBókhaldskerfatenging
UnicontaDanmörkBókhaldskerfatenging
Microsoft Business CentralSamkvæmt stillingu notandaBókhaldskerfatenging
UnimazeÍslandRafrænir reikningar

Vinnsla banka, bókhaldskerfa og Unimaze byggist þó á samningum viðskiptavinar við þau. Þau eru ekki undirvinnsluaðilar Skrif.

4.1 Hvenær deilum við gögnum

Við deilum persónuupplýsingum þínum eingöngu þegar:

  • Nauðsynlegt er til að veita þér þjónustuna (t.d. senda gögn til gervigreindarþjónustu)
  • Þú hefur gefið samþykki
  • Lög eða dómsúrskurður krefjast þess
  • Nauðsynlegt er til að vernda réttindi, eigur eða öryggi okkar eða annarra

4.2 Hvað gerum við ekki

  • Við seljum ekki persónuupplýsingar þínar
  • Gervigreindarþjónustur sem við notum þjálfa ekki líkön sín á gögnum þínum
  • Gögnin þín eru eingöngu aðgengileg vinnsluaðilum sem tilgreindir eru í kafla 4

5. Flutningur gagna til landa utan EES

Margir vinnsluaðila okkar eru í Bandaríkjunum. Við tryggjum fullnægjandi vernd persónuupplýsinga sem fluttar eru út fyrir Evrópska efnahagssvæðið með:

  • Ákvörðun ESB um fullnægjandi vernd vegna gagnaverndarrammans milli ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework), þegar vinnsluaðili er vottaður samkvæmt rammanum
  • Stöðluðum samningsákvæðum (SCCs) samkvæmt framkvæmdarákvörðun ESB 2021/914, þegar vinnsluaðili er ekki vottaður samkvæmt DPF

Hafðu samband við okkur ef þú vilt óska eftir afriti af viðeigandi samningsákvæðum.

6. Varðveislutími

GögnTímiÁstæða
NotandagögnMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
FyrirtækjaupplýsingarMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
Fjárhagsgögn og bankahreyfingarMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
BókhaldsgögnMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
SpjallsagaMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
Skjöl og skrárMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
Greiningar og skýrslurMeðan reikningur er virkur + 30 dagarÞjónustufyrirkomulag
Gögn frá PostHogSamkvæmt PostHog stillinguSamþykki

Eftir að gögnum hefur verið eytt er öryggisafritum þeirra eytt innan 13 mánaða. Reikninga sem Skrif gefur út til viðskiptavina varðveitum við í sjö ár samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald.

7. Vafrakökur

Við notum eftirfarandi vafrakökur:

TegundVeitandiTilgangurSamþykki
NauðsynlegarClerkInnskráning og auðkenningEkki krafist
NauðsynlegarSkrifVal um vafrakökurEkki krafist
GreiningarPostHogNotkunargreiningar og villuleitKrafist
MarkaðskökurGoogle og MetaMælingar á árangri auglýsinga og sérsniðnar auglýsingarKrafist

Greiningar- og markaðskökur eru ekki virkjaðar fyrr en þú hefur samþykkt þær. Þú getur breytt stillingum þínum hvenær sem er, í appinu undir Stillingar > Persónuvernd og á skrif.com með því að smella á Vafrakökur neðst á síðunni.

Með samþykki þínu fá Google Ireland Limited og Meta Platforms Ireland Limited upplýsingar um heimsóknir á skrif.com, sendar fyrirspurnir og nýskráningar í appinu til að mæla árangur auglýsinga og birta auglýsingar Skrif, t.d. þeim sem hafa heimsótt vefinn. Google vinnur þær sem sjálfstæður ábyrgðaraðili samkvæmt persónuverndarstefnu Google. Skrif og Meta eru sameiginlegir ábyrgðaraðilar að söfnun upplýsinganna og sendingu þeirra til Meta, sbr. viðauka Meta um ábyrgðaraðila, en eftir það vinnur Meta þær samkvæmt persónuverndarstefnu Meta.

8. Réttindi þín

Lög nr. 90/2018 og reglugerð ESB 2016/679 (GDPR) veita þér eftirfarandi réttindi:

RéttindiLýsing
AðgangsrétturFá afrit af persónuupplýsingum þínum
Réttur til leiðréttingarLeiðrétta rangar upplýsingar
Réttur til eyðingarEyða persónuupplýsingum
Réttur til takmörkunarTakmarka vinnslu gagna þinna
GagnaflutningsrétturFá gögn þín á véllæsilegu formi
AndmælarétturAndmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum
Réttur til afturköllunar samþykkisHvenær sem er, án þess að lögmæti fyrri vinnslu sé skert

8.1 Takmarkanir á réttindum

Við kunnum að hafna eða takmarka beiðni ef:

  • Ekki tekst að sannreyna hver þú ert
  • Gögnin hafa verið ópersónugreind eða eydd
  • Lagaskylda stendur í vegi
  • Beiðnin er augljóslega ástæðulaus eða óhófleg

Hafðu samband við okkur á [email protected] til að nýta þessi réttindi. Við svörum innan 30 daga (framlenganlegt í 90 daga við flókin erindi).

Þú átt einnig rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (personuvernd.is).

9. Öryggi

Fjárhagsgögn þín falla undir trúnaðarskyldu okkar. Öll gögn eru dulkóðuð við flutning (TLS) og í geymslu. Aðgangi er stýrt með hlutverkatengdum heimildum.

Ef öryggisbrestur verður bregðumst við við í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

10. Börn

Skrif er ekki ætlað einstaklingum yngri en 18 ára og við söfnum ekki vísvitandi persónuupplýsingum frá börnum. Samþykkisaldur vegna persónuverndar á Íslandi er 13 ár samkvæmt 10. gr. laga nr. 90/2018. Vegna þess að þjónustan snýr að fjármálagögnum og bókhaldi gerir Skrif þó kröfu um 18 ára aldur.

11. Breytingar á stefnunni

Stefnan er uppfærð eftir þörfum og dagsetningin efst á síðunni vísar ávallt til nýjustu útgáfu hennar. Við tilkynnum sérstaklega um verulegar breytingar.

12. Hafðu samband

Þú getur haft samband með tölvupósti á [email protected]. Við svörum erindum innan 30 daga.